Rannsakar magasár í íslenskum hestum
Úndína Ýr Þorgrímsdóttir dýralæknanemi, sem er að gera vísindarannsókn á magasárum hjá íslenskum hestum. Hún útskrifast úr námi næsta vor. Mynd: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Á stöð 2 í gærkvöldi var Magnús Hlynur Hreiðarsson með verulega áhugavert viðtal við Úndínu Ýr Þorgrímsdóttur, dýralæknanema, sem er að gera skipulagða rannsókn á tíðni magasára í íslenskum hrossum. Rannsóknin er lokaverkefni Úndínu í dýralæknanámi sínu og er þetta í fyrsta sinn sem gerð er slík rannsókn og hefur hún keypt sérstakt magaspeglunartæki fyrir hross til að geta unnið rannsókn sína. Magasár er einn algengasti sjúkdómur í maga í hrossum og kannað er sérstaklega hvaða áhrif ýmsir umhverfisþættir hafa á kvillan. Það verður áhugavert að fylgjast með framvindu rannsóknarinnar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH