Rannsókn á hófum og járningum
Á Landsmóti 2012 mun fara fram rannsókn á járningum og hófum keppnis- og kynbótahrossa. Rannsóknin er liður í átaksverefni FEIF og er tilgangur verkefnisins að afla upplýsinga sem nýtast í framtíðinni í uppbyggingu á reglugerðum samtakanna og stuðla að heilbrigði og bættri meðhöndlun íslenskra keppnis- og kynbótahrossa.
Þau hross sem lenda í úrtaki og verða skoðuð, verða valin af handahófi í heilbrigðis- eða fótaskoðun. Tilkynnt verður á knapafundi hvernig það val fer fram og hvar mælingar fara fram. Skoðanir á hrossum hefjast á sunnudaginn 23. júní og mánudaginn 24. júní og hefjast samhliða heilbrigðisskoðunum. Hver skoðun mun taka u.þ.b. 20 mínútur. Ef einhverjir sem ekki hafa lent í úrtaki hafa áhuga að taka þátt í rannsókninni eru þeir boðnir velkomnir og skuli setja sig í samband við dýralækni í heilbrigðisskoðun til að fá nákvæmar upplýsingar eða hringja í síma 899-3554.
Rannsóknin er algjörlega óháð keppninni sjálfri og hefur eingin áhrif á niðurstöður dóma og reynt verður að haga verkþáttum þannig að það trufli þá sem í úrtaki lenda sem minnst.
Knapar og eigendur hrossa eru hvattir til að taka jákvætt í að taka þátt í rannsókninni og verður reynt eftir bestu getu að hliðra til með tímasetningar til að valda sem minnstum óþægindum.
Rannsóknin er á vegum FEIF og verður unnin af fagfólki frá Dýralæknaháskólanum í Zürich Sviss, og Veile dýralæknamiðstöð Danmörku .
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH