Ráslistar fyrir tölt og skeið
Ráslistarnir eru tilbúnir fyrir lokakvöld KS-Deildarinnar sem fer fram miðvikudaginn 8 apríl í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki. Keppt verður í slaktaumatölti og skeiði og hefst keppni kl 20:00. Mikil spenna er fyrir þessu kvöldi þar sem nokkrir knapar eiga raunhæfa möguleika á sigri í einstaklingskepninni. Lið Hrímnis stendur vel að vígi í liðakeppninni en þó getur allt gerst.
Tveir hestar úr A-úrslitunum í slaktaumatölti í fyrra mæta aftur til leiks í ár en það eru þeir Taktur frá Varmalæk og Roði frá Garði. Athygli vekur að tvöfaldur landsmótssigurvegari Kamban frá Húsavík mætir í slaktaumatöltið.
Sigurvegarar skeiðsins í fyrra voru Bragur frá Bjarnastöðum og Þórarinn Eymundsson, þeir náðu frábærum tíma í gegnum höllina 4,95 og mæta þeir aftur í ár. Fleiri fljótir hestar eru skráðir Korði, Þúsöld, Hrappur, Segull, Johnny o.fl.
Aðgangseyrir er kr. 1500,- og gildir miðinn sem happdrættismiði. Í vinning eru folatollar undir hina þekktu stóðhesta Andra frá Vatnsleysu og Blæ frá Miðsitju.
Slaktaumatölt
1.Sölvi Sigurðarson – Starkaður frá Stóru-gröf
2.Þorbjörn H. Matthíasson – Fróði frá Akureyri
3.Jóhann B. Magnússon – Ásgerður frá Seljabrekku
4.Elvar E. Einarsson – Simbi frá Ketilsstöðum
5. Vigdís Gunnarsdóttir – Björk frá Lækjamóti
6. Þórarinn Eymundsson – Taktur frá Varmalæk
7. Gísli Gíslason – Ljóska frá Borgareyrum
8. Hörður Óli Sæmundarson – Daníel frá Vatnsleysu
9.Ísólfur Líndal Þórisson – Vaðall frá Akranesi
10. Tryggvi Björnsson – Vág frá Höfðabakka
11.Líney María Hjálmarsdóttir – Þytur frá Húsavík
12. Baldvin Ari Guðlaugsson – Kvika frá Ósi
13. Mette Mannseth – Stjörnustæll frá Dalvík
14. Bjarni Jónasson – Roði frá Garði
15. Arnar Bjarki Sigurðarson – Kamban frá Húsavík
16. Sigvaldi Lárus Guðmundsson – kylja frá Hólum
17. Hlín C Mainka Jóhannesdóttir – Hlöðver frá Gufunesi
18. Viðar Bragason – Björg frá Björgum
Skeið
1.Hlín C Mainka Jóhannesdóttir – Hvinur frá Hvoli
2.Hörður Óli Sæmundarson – Þeyr frá Prestbæ
3. Sigvaldi Lárus Guðmundsson – Sóldögg frá Skógskoti
4. Þorbjörn H. Matthíasson – Freyja frá Akureyri
5. Ísólfur Líndal Þórisson – Korði frá Kanastöðum
6.Tryggvi Björnsson – Guðfinna frá Kirkjubæ
7. Sölvi Sigurðarson – Steinn frá Bakkakoti
8.Vigdís Gunnarsdóttir – Sólbjartur frá Flekkudal
9. Þórarinn Eymundsson – Bragur frá Bjarnastöðum
10.Mette Mannseth – Þúsöld frá Hólum
11.Elvar E. Einarsson – Segull frá Halldórsstöðum
12.Baldvin Ari Guðlaugsson – Fáfnir frá Efri-Rauðalæk
13. Gísli Gíslason – Hraðsuðuketill frá Borgarnesi
14.Jóhann B. Magnússon – Hvirfill frá Bessastöðum
15. Bjarni Jónasson – Hrappur frá Sauðárkróki
16.Arnar Bjarki Sigurðarson – Stygg frá Akureyri
17.Viðar Bragason – Johnny frá Hala
18. Líney María Hjálmarsdóttir – Brattur frá Tóftum
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH