Ráslisti fyrir gæðingalistina í 1. deildinni
Á fimmtudaginn næsta, 7. mars, heldur áfram keppni í 1. deildinni. Keppt verður í gæðingalist GL2 og mun keppni hefjast kl. 19:00 en ekki verða riðin úrslit.
Fyrstur í braut er Kári Steinsson á Sigð frá Syðri-Gegnishólum. Fyrsta keppni þeirra saman í gæðingalist en Sigð hefur nokkra reynslu af fimi og varð m.a. Íslandsmeistari í gæðingalist í unglingaflokki ásamt eiganda sínum Lilju Rún Sigurjónsdóttir.
Vilborg Smáradóttir vann fjórganginn á Sigri frá Stóra-Vatnsskarði og mætir með hann í gæðingalistina líka. Arnhildur Helgadóttir er skráð með Völu frá Hjarðartúni en þær hafa verið að stimpla sig inn sem eitt okkar fremsta keppnisbar en þær unnu m.a. töltið á Fjórðungsmótinu í sumar.
Það eru margir spennandi hestar á ráslistanum sem hægt er að sjá hér fyrir neðan. Húsið opnar kl. 17:00 og hægt verður að gæða sér á kvöldverði fyrir mótið.
Nr. Knapi Hestur Lið
1 Kári Steinsson Sigð frá Syðri-Gegnishólum Hringdu
2 Birna Oliva Ödkvist Kór frá Skálakoti Vindás/stóðhestaval
3 Sunna Sigríður Guðmundsdóttir Blakkur frá Traðarholti Laxárholt mýrdalur
4 Ríkharður Flemming Jensen Garri frá Bessastöðum Heimahagi
5 Telma Lucinda Tómasson Forni frá Flagbjarnarholti Horseday
6 Arnhildur Helgadóttir Vala frá Hjarðartúni Sportfákar
7 Sigurður Halldórsson Gustur frá Efri-Þverá Stjörnublikk
8 Eysteinn Tjörvi Greifi frá Söðulshölti Kidka/hestakofi
9 Anna Björk Ólafsdóttir Taktur frá Hrísdal Sportfákar
10 Hermann Arason Náttrún Ýr frá Herríðarhóli Vindás/stóðhestaval
11 Elvar Logi Teningur Kidka/hestakofi
12 Elín Hrönn Sigurðardóttir Snilld frá Skeiðvöllum Stjörnublikk
13 Sigríður Pjetursdóttir Flygill frá Sólvangi Laxárholt mýrdalur
14 Hákon Dan Ólafsson Geisli frá Gafli Heimahagi
15 Friðdóra Friðriksdóttir Hallsteinn frá Hólum Horseday
16 Ylfa Guðrún Svafarsdóttir Straumur frá Hríshóli Hringdu
17 Guðmunda Ellen Sigurðardóttir Flaumur frá Fákshólum Heimahagi
18 Haukur Bjarnason isar frá Skáney Kidka/hestakofi
19 Katrín Sigurðardóttir Ólína frá Skeiðvöllum Stjörnublikk
20 Tinna Rut Jónsdóttir Forysta frá láxárholti Laxárholt mýrdalur
21 Reynir Örn Pálmason fjalar frá Margrétarhofi Hringdu
22 Anna Valdimarsdóttir Ólsen frá Egilsá Horseday
23 Snorri Dal Gimsteinn frá Víðinesi Sportfákar
24 Vilborg Smáradóttir Sigur frá Stóra-Vatnsskarði Vindás/stóðhestaval
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH