Reiðkennarar óskast á Hólaskóla
Á vef stjórnarráðsins er auglýst til umsóknar tvær stöður reiðkennara við Hestafræðideild Háskólans á Hólum. Önnur staðan er tímabundin en hin ótímabundin. Hér fyrir neðan er auglýsingin:
„Hestafræðideild háskólans veitir fagmenntun á sviði hestafræða, tamninga, reiðmennsku og reiðkennslu og vinnur að þróun og nýsköpun fræðasviðsins í rannsóknastarfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Verkleg og bókleg reiðkennsla og tengd verkefni.
- Þjálfun á hestakosti háskólans.
- Önnur verkefni í samráði við deildarstjóra
Hæfniskröfur
- Reiðkennaramenntun og reynsla af reiðkennslu.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum og samvinnu.
- Góð íslensku og enskukunnátta í ræðu og riti.
- Frekari upplýsingar um starfið
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Á Hólum er fjölskylduvænt samfélag, falleg náttúra og sögurík umgjörð. Á staðnum er leik- og grunnskóli. Háskólinn aðstoðar við að útvega húsnæði í Skagafirði ef þess er þörf.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga um opinbera háskóla nr. 85/2008. Launakjör eru skv. kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Umsóknarfrestur er til og með 2. janúar 2023 og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar um starfið veitir Íris Dögg Björnsdóttir mannauðsráðgjafi, [email protected].
Sótt er um starfið á starfatorg.is.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.01.2023
Nánari upplýsingar veitir
Íris Dögg Björnsdóttir, Mannauðsráðgjafi – [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts