Reiðmaðurinn – Viltu ná betri tökum á eigin reiðmennsku?
Frá kennslu í reiðmanninum
Reiðmaðurinn er alhliða reiðnám fyrir hinn almenna hestamann sem vill auka við þekkingu sína og færni í reiðmennsku, hrossarækt og almennu hestahaldi, en ekki síður fyrir þá hestamann sem vilja fara í þá vinnu að eflst sem manneskjur.
Námið nær yfir tvö ár og er kennt víða um landið. Nemendur verða hluti af 10-14 manna hópi sem hittir sinn reiðkennara í reiðhöll eina helgi í mánuði frá hausti og fram á vor. Yfir námstímann taka nemendur þátt í einni staðlota á hverri önn þar sem fjöldi hagnýtra fyrirlestra eru í boði í bland við fjölbreytta verkefnavinnu nemenda.
Nemendur fá tækifæri til að þróast í eigin reiðmennsku óháð fyrri reynslu og um leið að takast á við nýjar áskoranir og aukna ábyrgð á eigin reiðmennsku. Námið er í senn blanda af fræðilegri nálgun og verklegum æfingum þar sem fjölbreytt, hagnýtt og einstaklingsmiðað nám er haft í forgrunni. Nemendur takast á við sjálfa sig á persónulegum nótum þar sem unnið er markvisst að settum markmiðum þar sem vel menntaðir og þjálfaðir reiðkennarar leiðbeina út frá einstaklingsviðmiðum í þéttu aðhaldi sem hópastarf gefur.
Opið er fyrir umsóknir haustið 2020 á e.t. stöðum:
Kópavogur – Hestamannafélagið Sprettur – reiðkennari verður Hekla Katharína Kristinsdóttir
Hafnarfjörður – Hestamannafélagið Sörli – reiðkennari verður Ásta Björnsdóttir
Flúðir – Hestamannafélagið Smári – reiðkennari verður Þórarinn Ragnarsson
Akureyri – Hestamannafélagið Léttir – reiðkennari verður Reynir Atli Jónsson
Miðfossar í Borgarfirði – reiðkennari verðurHaukur Bjarnason
Hinrik Þór Sigurðsson verkefnastjóri veitir nánar upplýsingar um námskeiðaröðina Reiðmanninn í síma 843 5377 og/eða á netfanginu [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH