Reiðnámskeið á Hvammstanga
Helgina 22. og 23. mars næstkomandi verður almennt reiðnámskeið á Hvammstanga. Kennarar eru nemendur á reiðkennarabraut Hólaskóla. Einungis 12 pláss eru í boði, fyrstur kemur, fyrstur fær og því er um að gera að skrá sig sem fyrst. Kennt verður í litlum hópum í verklegum tímum en einnig blandast í þetta bókleg kennsla.
Ekkert aldurstakmark veður en þátttakendur verða að vera sjálfbjarga á hestbaki.
Skráningarfrestur er til miðnættis 20. mars á [email protected]
Nánari upplýsingar má fá í s. 821-8822 Guðrún
Styttu haustið með EiðfaxaTV