Reykjavík er landsmótsstaðurinn
Reykjavík er framtíðarlandsmótsstaður að mati hjónanna Kristbjargar Eyvindsdóttur og Gunnars Arnarssonar hrossaræktendur að Auðsholtshjáleigu. Blaðamaður Eiðfaxa rakst á þau brosandi og sólbökuð í Hvammsbrekkunni þar sem þau fylgdust með sýningu afkvæmahesta. Kristbjörg var í dýrindisskapi þegar Eiðfaxi heilsaði upp á hana. “Hér er yndislegt. Fólki virðist líða vel og er að njóta augnabliksins. Ég hef ekki heyrt í nokkrum manni sem er óánægður. Mér finnst ríkja skemmtilega afslöppuð stemning.”
Kristbjörg og Gunnar eru með hátt í tuttugu hross á landsmóti, sem taka þátt í keppni, kynbótadómum, afkvæma- og ræktunarbússýningu og var því ekki úr vegi að spyrja þau út í utanumhald og aðstöðu þátttakanda. “Aðstaðan er draumur fyrir hesteigendur og keppendur. Hér er nóg af húsum svo hægt er að hýsa alla hesta og mér heyrist að keppendur séu almennt mjög ánægðir með þá aðstöðu sem hér er í boði. Loksins getum við fylgst með mótinu, vitandi af hrossunum í öruggum húsum,” segir Kristbjörg.
“Allt vinnuumhverfi sýnenda er til fyrirmyndar og velferð hestanna er tryggt á stað sem þessum. Knaparnir eru betur upp lagðir og mótið gengur þar með betur,” segir Gunnar Arnarson. “Fólk fær kannski meiri svefn líka,” bætir Kristbjörg við hlæjandi.
Gunnar og Kristbjörg eru sammála um að þau vilji sjá Reykjavík sem eina landsmótsstaðinn. “Framtíðin liggur í að búa til einn virkilega flottan landsmótsstað og hann á að vera í Reykjavík.”
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH