Reykjavíkurmeistaramót Fáks 1. maí

  • 24. apríl 2013
  • Fréttir
Reykjavíkurmeistaramót Fáks 1. maí

“Hið geysiöfluga World ranking Reykjavíkurmeistaramót Fáks hefst miðvikudaginn 1. maí og lýkur á sunnudeginum 5. maí. Boðið er upp á mikinn fjölda keppnisgreina og ættu allir að geta fundið sér flokk við hæfi. Nýir flokkar eru á mótinu s.s. T7 (skráð sem tölt annað) og V5 (fjórgangur annað) en þeir eru fyrir keppendur sem eru að byrja að keppa.

Skráningagjöldin eru 3.000 fyrir börn, unglinga og í skeiðkappreiðum. Í alla aðra flokka eru skráningagjöldin 5.000 þar með talið gæðingaskeið

Drög að dagskrá (sem gæti breyst eitthvað en sennilega verða keppnisgreinarnar á sömu dögum).

Miðvikudagur 1. maí Fjórgangur

Fimmtudagur 2. maí fimmgangur

Föstudagur 3. maí tölt

Laugardagsmorgun gæðingaskeið og slaktaumatölt.

Skráning hefst aðfararnótt miðvikudagins 24. apríl og lýkur á miðnætti föstudagsins 26. maí. Skrá verður í hinu nýja skráningarkerfi í Sportfeng (sjá leiðbeiningar) undir nánar).

Til að skrá þarf að fara inn á http://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add

Þar undir velur maður:

-Velur hestamannafélagið Fák

-Fyllir út umbeðnar upplýsingar (ATH. að fylla út öll stjörnumerkt svæði) -Þar neðst, í „velja atburð“ velurðu Reykjavíkurmót Fáks -Svo hakarðu við þinn keppnisflokk og velur upp á hvora hönd þú vilt byrja.

-Smellir svo á „setja í körfu“

-Ef þú ætlar að skrá fleiri hesta heldurðu áfram að skrá á sama hátt í næsta glugga -Þegar þú hefur skráð þig og þinn hest eða hesta og ætlar ekki að skrá fleiri, þá smellirðu á „Vörukarfa“ uppi í horninu hægra megin -Ferð yfir skráningu þína og smellir á „Áfram“ ef allt er rétt -Næst er að fylla inn upplýsingar um greiðanda -Ferð yfir pöntun þína og skilmála, muna að haka við „samþykki skilmála“

ATH. EINGÖNGU ER TEKIÐ VIÐ GREIÐSLU MEÐ KORTUM – notið þann lið.

-Þá kemurðu næst inn á greiðslusvæði kreditkorta og fyllir inn upplýsingar þar og smellir á „Greiða núna.“

-Kvittun mun berast á skráð netfang – passið að fara vel yfir netföng svo þau séu rétt!

-Skráning er ekki staðfest nema greiðsla hafi borist,“ segir í tilkynningu frá Fák

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link