Röð ræktunarbússýninga
„Sýningar ræktunarbúa skipa heiðurssess á landsmótum hestamanna og á LM2012 í Reykjavík verður engin breyting þar á. Ræktunarbúin eru á dagskrá mótsins föstudagskvöldið 29. júní milli kl. 21:00 og 22:00 og áhorfendum verður boðið að velja bestu ræktunarbússýninguna með símakosningu. Það ræktunarbú sem flest atkvæði hlýtur ávinnur sér þann heiður að koma fram á laugardagskvöldinu í skemmtidagskrá kvöldvöku,“ segir í fréttatilkynningu frá landsmóti en atkvæði fimm manna dómnefndar og fagnaðarláta úr brekkunum gilda til jafns við símakosningu.
Röð sýninga ræktunarbúanna verður sem hér segir.
1. Efri-Rauðalækur
2. Syðri-Gegnishólar
3. Koltursey
4. Auðsholtshjáleiga
5. Eystra-Fróðholt
6. Austurkot
7. Álfhólar
8. Vatnsleysa
9. Blesastaðir 1a
10. Kjartansstaðir
11. Kirkjubær
12. Flugumýri
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH