RÚV sendir út stærstu mót ársins
RÚV mun senda út beint frá stærstu viðburðum hestamanna í ár og verður fyrsta útsendingin frá Reykjavíkurmeistaramótinu í hestaíþróttum á sunnudaginn kemur, 18. júní nk. Reykjavíkurmeistaramótið er stærsta mót ársins og hefur keppni staðið yfir alla vikuna.
Send verða út úrslit í flokkum ungmenna og meistara þar sem knapar kljást m.a. um sæti í landsliði Íslendinga á HM í Hollandi í sumar. Útsending hefst kl. 13 og stendur til kl. 17 á aðalrás RÚV.
Þá mun RÚV einnig senda út frá lokadegi Íslandsmótsins í hestaíþróttum á Selfossi 2. júlí nk. og vera með fréttir og samantektarþætti frá Heimsmeistaramótinu í Hollandi í ágúst.
Um stjórn útsendinga sér Óskar Þór Nikulásson, en umsjón hefur Hulda G. Geirsdóttir, auk álitsgjafa og aðstoðarfólks sem koma munu að verkefninu.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Hestamannafélagið Sörli leitar að móta- og viðburðafulltrúa