Samningum landað á Landsmóti
Aqua Icelander og Margaretehof Islandhästcenter í Svíþjóð undirrituðu kaupsamning á Landsmóti hestamanna nú um helgina.
Filippa Montan ásamt eiginmanni sínum Derek Ryan sem reka Margaretehof í Svíþjóð eru að undirbúa opnun á alhliða endurhæfinga og þjálfunarstöð fyrir hesta sem verður bæði fyrir íslenska hesta og stærri hestakyn.
Þau völdu heildarlausn frá Aqua Icelander sem inniheldur vatnsþjálfunartæki með kælibúnaði, þurrk-klefa, infrarauða hitalampa, ásamt vibragólfi. Aqua Icelander vörurnar eru alfarið íslenskt hugvit hannaðar og smíðaðar hér á landi.
Nýlega var slíkur búnaður frá fyrirtækinu settur upp á einu virtasta Thoroughbred hestaræktunarbúi fyrir veðhlaupahesta í New South Wales í Ástralíu.
Hestatengdar vörur fyrirtækisins er nú komnar til 9 landa í 3 heimsálfum og mikill áhugi er á slíkum lausnum við þjálfun hesta um allan heim.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH