Samvinna hestakvenna skapar Kátínu-

  • 13. desember 2010
  • Fréttir
Samvinna hestakvenna skapar Kátínu-

Út er komin ný hestabók á fjórum tungumálum, íslensku, ensku, sænsku og þýsku…

Sagan af Kátínu greinir frá fæðingu og uppvexti merfolaldsins Kátínu sem fer fjögurra vetra í kynbótadóm og fær 1. einkunn. Höfundur bókarinnar er 17 ára MR-ingur og forfallin hestaáhugakona, Hildur Þóra Ólafsdóttir.

Josefina Margareta Morell, bóndi og hestakona að Giljum í Borgarfirði myndskreytti bókina með fallegum vatnslitamyndum.  Blær Guðmundsdóttir, grafískur hönnuður, setti bókina sem er öll hin glæsilegasta. Það má því segja að samvinna þessarra ungu kvenna hafi skapað Kátínu. Kátína er gefin út af Bókaútgáfunni Æskunni og fæst í öllum helstu bókaverslunum og hestaverslunum landsins.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link