Sex WR mót hérlendis á árinu
Sex World Ranking mót verða haldin á Íslandi í ár skv. alþjóðasamtökunum FEIF, en árangur á mótunum er skráður á heimslista FEIF. Sitt sýnist hverjum um heimslistann sem hefur þann tilgang að sýna einhvers konar samanburð keppenda á milli landa þar sem þrjár bestu einkunnir knapa á WR mótum sl. tveggja ára eru reiknaðar inn á listann.
Fyrsta WR mótið á árinu er opna íþróttamót Mána í Keflavík í apríl, en af þessum sex mótum eru tvö þeirra á sama tíma, íþróttamót Harðar í Mosfellsbæ og íþróttamót Sleipnis á Selfossi.
- 20. -22. apríl: Opna íþróttamót Mána – Máni, Mánagrund Keflavík
- 2.-6. maí: Reykjavíkurmeistaramót – Fákur, Hvammsvöllur Víðidalur Reykjavík
- 11.-13. maí: WR Opið íþróttamót Sleipnis – Sleipnir, Brávellir Selfoss
- 11.-13. maí: WR Íþróttamót Harðar – Hörður, Varmárbakkar
- 19.-22. júlí: Íslandsmót fullorðinna í hestaíþróttum – Stígandi, Léttfeti, Svaði, Vindheimamelar Skagafirði
- 15.-19. ágúst: Suðurlandsmót – Geysir, Gaddstaðaflatir Hella
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH