Síðasti skráningadagur í Ístölt Austurlands
Í dag er síðasti skráningadagur í Ístölt Austurlands.
Ístölt Austurlands 2011 verður haldið á Móavatni við Tjarnaland laugardaginn 26. febrúar. Keppni hefst kl. 10 en það er hestamannafélagið Freyfaxi sem stendur fyrir mótinu.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum: Tölt opinn, Tölt áhugamenn, Tölt yngri en 16 ára, B-flokk, A-flokk. Skráningagjald á hvern knapa er 2500 kr. á fyrsta hest, 2000 kr. á annan og 1500 kr. á þriðja. Fylgja skal skráningu pöntun á hesthúsplássi, upplýsingu um komutíma og brottför.
Nauðsynlegt er að greiða skráningagjaldið um leið og skráð er. Ekki er hægt að skrá eftir lokun skráningafrests.
Skráning er hjá Nikólínu í síma 847-8246 eða á netfangið: [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH