Síðustu skeiðleikar sumarsins
Fátt er árangursríkara en íslenskir skeiðleikar til að losa hestamenn við „Berlínar slenið“ svokallaða, og því hefur verið blásið til fimmtu og síðustu skeiðleika Skeiðfélagsins í sumar, en þeir verða haldnir miðvikudaginn 28.ágúst á Brávöllum á Selfossi en vegna þess að komið er nær hausti munu þeir hefjast klukkan 19:00 en ekki 20:00 eins og reglan hefur verið í sumar. Veðurspáin virðist loksins ætla að vera okkur hagstæð og ef það stendur og miðað við styrkleika hrossa ættum við að geta séð feikna tíma falla.Allt verður á sínum stað; 250m og 150m skeið, auk 100m flugskeiðs! Gengið verður hreint og greitt til verks sem endranær og haft í öndvegi að knapar og áhorfendur geti átt notalega kvöldstund. Styrktaraðili verðlaunagripa mótsins er Toyota á Selfossi
Hnakkurinn sem okkar helsti styrktaraðili – Hestavöruverslunin Baldvin og Þorvaldur ehf. – mun veita þeim sem fyrstur slær Íslandsmet á skeiðleikum þetta sumarið er ekki genginn út og því er enn tækifæri fyrir knapa til að neyta allra löglegra ráða er þeir telja að komið geti að haldi á komandi leikum. Hafa ber það í huga að nú er síðasta tækifæri til að hreppa hnakkinn góða og stóð býsna nærri því á síðasta móti, en þá fóru Teitur Árnason og Tumi frá Borgarhóli á 14,16 sekúndum í 150m skeiði en standandi met í þeirri grein er 13,98 sett af Sigurbirni Bárðarsyni og Óðni frá Búðardal.
Dagskrá 19:00
250m. skeið
150m.skeið
100m.skeið(fljúgandi skeið)
Ráslistar
250m.skeið
1
Daníel Ingi Smárason
Blængur frá Árbæjarhjáleigu II
1
Árni Björn Pálsson
Korka frá Steinnesi
1
Sigurbjörn Bárðarson
Andri frá Lynghaga
2
Reynir Örn Pálmason
Skemill frá Dalvík
2
Ævar Örn Guðjónsson
Gjafar frá Þingeyrum
2
Daníel Ingi Smárason
Hörður frá Reykjavík
3
Teitur Árnason
Jökull frá Efri-Rauðalæk
3
Sigurðr Óli Kristinsson
Arfur frá Ásmundarstöðum
3
Gústaf Ásgeir Hinriksson
Fálki (Taktur) frá Stóra Hofi
4
Bjarni Bjarnason
Hera frá Þóroddsstöðum
4
Axel Geirsson
Tign frá Fornusöndum
150m.skeið
Hópur
Knapi
Hestur
1
Guðrún Elín Jóhannsdóttir
Askur frá Efsta-Dal I
1
Jóhann Valdimarsson
Óðinn frá Efsta-Dal I
1
Bjarni Bjarnason
Blikka frá Þóroddsstöðum
2
Sigurbjörn Bárðarson
Óðinn frá Búðardal
2
Hanna Rún Ingibergsdóttir
Birta frá Suður-Nýjabæ
3
Teitur Árnason
Tumi frá Borgarhóli
3
Jón Bjarni Smárason
Virðing frá Miðdal
3
Þráinn Ragnarsson
Gassi frá Efra-Seli
4
Daníel Ingi Larsen
Dúa frá Forsæti
4
Ragnar Tómasson
Gletta frá Bringu
4
Ævar Örn Guðjónsson
Blossi frá Skammbeinsstöðum 1
5
Ingi Björn Leifsson
Þór frá Selfossi
5
Þórarinn Ragnarsson
Funi frá Hofi
5
Þorkell Bjarnason
Halla frá Skúfsstöðum
6
Árni Björn Pálsson
Fróði frá Laugabóli
6
Daníel Ingi Smárason
Blængur frá Árbæjarhjáleigu II
6
Guðrún Elín Jóhannsdóttir
Nn frá Efsta-Dal I
7
Reynir Örn Pálmason
Skemill frá Dalvík
7
Eyjólfur Þorsteinsson
Vera frá Þóroddsstöðum
7
Jóhann Valdimarsson
Eskja frá Efsta-Dal I
8
Tryggvi Björnsson
Dúkka frá Steinnesi
8
Daníel Gunnarsson
Fegurð frá Breiðholti í flóa
8
Sigurðr Óli Kristinsson
Tvistur frá Skarði
9
Birna Káradóttir
Prinsessa frá Stakkhamri 2
9
Sigurður Sigurðarson
Snælda frá Laugabóli
10
Guðmundur Ólafur Bæringsson
Hruni frá Árbæ
10
Gústaf Ásgeir Hinriksson
Veigar frá Varmalæk
100m.skeið
Hópur
Knapi
Hestur
1
Eyjólfur Þorsteinsson
Spyrna frá Vindási
2
Ragnar Tómasson
Isabel frá Forsæti
3
Bjarni Bjarnason
Goði frá Þóroddsstöðum
4
Berglind Rósa Guðmundsdóttir
Hörður frá Reykjavík
5
Guðmar Þór Pétursson
Ör frá Eyri
6
Einar Öder Magnússon
Alvar frá Halakoti
7
Guðrún Elín Jóhannsdóttir
Nn frá Efsta-Dal I
8
Ingi Björn Leifsson
Þór frá Selfossi
9
Ævar Örn Guðjónsson
Vaka frá Sjávarborg
10
Jóhann Valdimarsson
Óðinn frá Efsta-Dal I
11
Helgi Eyjólfsson
Vinkona frá Halakoti
13
Leifur Sigurvin Helgason
Ketill frá Selfossi
14
Lárus Jóhann Guðmundsson
Tinna frá Árbæ
15
Ragnar Tómasson
Branda frá Holtsmúla 1
16
Hanna Rún Ingibergsdóttir
Birta frá Suður-Nýjabæ
17
Davíð Jónsson
Irpa frá Borgarnesi
18
Guðrún Elín Jóhannsdóttir
Askur frá Efsta-Dal I
19
Bjarni Bjarnason
Váli frá Þóroddsstöðum
20
Jóhann Valdimarsson
Eskja frá Efsta-Dal I
21
Daníel Gunnarsson
Skæruliði frá Djúpadal
22
Einar Öder Magnússon
Svana frá Hávarðarkoti
23
Sigurðr Óli Kristinsson
Arfur frá Ásmundarstöðum
24
Birna Káradóttir
Prinsessa frá Stakkhamri 2
25
Gústaf Ásgeir Hinriksson
Fálki (Taktur) frá Stóra Hofi
26
Guðmundur Ó. Bæringsson
Hausti frá Árbæ
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH