Siggi Sig þróar nýjan hnakk.
Sigurður Sigurðarsson var á FM2013 og ræddi við blaðamann Eiðfaxa m.a. um framtíð fjórðungsmóta.
Hann var að leggja á þegar okkur bar að garði og spurðum við um hnakkinn sem hann var að nota en hann var vægast sagt illa farinn. Sagði hann í gríni að þetta væri þróunarvinna hjá honum og Ástund.
Í samtali við Guðmund í Ástund sagði hann ekki eiga von á því að hnakkur eins og Sigurður var með á FM2013 fari í fjöldaframleiðslu og sagði Sigurð fá nýjan Ástundarhnakk nú á næstu dögum.