Sigurbjörn fær heiðursverðlaun LH

  • 12. nóvember 2022
  • Fréttir
Á verðlaunahátíð LH 2022 var Sigurbjörn Bárðarson sæmdur heiðursverðlaunum LH.

Sigurbirni Bárðasyni voru veitt heiðursverðlaun LH í gær á verðlaunaafhendingu LH í félagsheimili Fáks. Hér fyrir neðan er textinn sem lesinn var upp um Sigurbjörn:

Keppnisferlinn Sigurbjörns Bárðarsonar er einstakur og er auðvelt að fullyrða að enginn íþróttamaður á Íslandi standist honum samanburð í þeim efnum. 

Ferillinn spannar yfir 50 ár og inniheldur 13 heimsmeistaratitla, fjölmörg heimsmet, ótal Íslandsmet, ófáa Íslandsmeistaratitla, nokkra Landsmótssigra, nú síðast Íslandsmeistari og Landsmótsmeistari í 150 m skeiði í ár, 70 ára gamall.

Árið 1993 hlaut Sigurbjörn Bárðarson titilinn íþróttamaður ársins í kjöri íþróttafréttamanna og er það einn mesti heiður sem íslenskum hestaíþróttamanni hefur hlotnast.

Sigurbjörn hefur í gegnum tíðina átt stórt hlutverk í menntamálum hestamanna á Íslandi, gefið út kennslubók, kennsluefni og myndbönd, setið í fræðslu- og menntanefndum FT og GDLH og háskólaráði ásamt því að hafa virka aðkomu að framkvæmd og dæmingu prófa á Háskólanum á Hólum.

Þar að auki skipta nemendur hans í reiðkennslu þúsundum um heim allan gegnum tíðina.

Sigurbjörn hefur unnið ötullega að félagsstörfum alla tíð og var til að mynda formaður Félags tamningamanna um árabil, varaformaður Hestamannafélagsins Fáks, sat í stjórn og byggingarnefnd fyrstu alvöru reiðhallarinnar á Íslandi, sem í dag er TM reiðhöllin, auk þess að sitja í nefndum FEIF og fleiri samtaka.

Þegar kemur að kynningarmálum hefur Sigurbjörn ekki látið sitt eftir liggja og sem dæmi má nefna aðkomu að stórsýningum um heim allan, eins og í Madison Square Garden, Equitana og fleiri stórviðburðum auk þess að setja á fót ýmsar sýningar hér á landi, sumar ansi frumlegar og sérstakar eins og Hrossagaldur í Skautahöllinni í Laugardal, sýning í Ásbyrgi, riðið niður Almannagjá, Miðbæjarreið og margt fleira. Þegar kemur að því að kynna íslenska hestinn er Sigurbjörn sannarega ötull sendiherra.

Heiðursviðurkenning LH bætist nú við ótrúlegt safn verðlauna og viðurkenninga sem Sigurbirni Bárðarsyni hefur hlotnast í gegn um tíðina en auk þess að eiga langstærsta verðlaunasafn landsins þá hefur hann eins og áður segir hlotið fjölda annarra viðurkenninga en þar má til dæmis nefna Gullmerki LH, Riddarakross hinnar íslensku Fálkaorðu auk titilsins íþróttamaður ársins.

Þáttur Sigurbjörns í ímyndarvinnu hestamennskunnar verður seint að fullu metinn. Hann hefur lyft íþróttinni upp á annað plan hvað varðar ásýnd og fagmennsku. Vandvirkni hans og virðing fyrir viðfangsefninu hefur smitast til allra sem að hestamennsku koma enda hefur hann verið fyrirmynd nýrra kynslóða í áratugi. Það er sannarlega við hæfi að veita Sigurbirni heiðursverðlaun LH í Fáksheimilinu í miðju Víðidalsins þar sem hann hefur starfað stóran hluta starfsferils síns.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar