Sigurður í yfirheyrslu-
Sigurður Sigurðarson bar sigur úr býtum í samanlagðri stigakeppni einstaklinga í Meistaradeildinni í ár. Hann tók þátt í öllum greinum deildarinnar og blandaði sér í toppbaráttuna í hvert sinn og leiddi keppnina nokkuð örugglega frá því hann sigraði fyrsta mót deildarinnar.
Eiðfaxi fékk Sigurð í yfirheyrslu um Meistaradeildina, sigurinn, undirbúningin og hleraði hvað væri framundan hjá þessum afreksknapa.
Hversu áríðandi er Meistaradeildin þér?
„Meistaradeildin er mjög góð viðbót við keppnistímabilið. Það heldur manni á tánum með að hafa hestana sína í góðri þjálfun. Hún gerir kröfur til manns á mörgum sviðum, t.d. að ríða fimiæfingar og skeið. Ég held að hún sé gríðarlega mikilvæg fyrir okkur hestamenn því með sjónvarpsþáttum og umfjöllun í kringum Meistaradeildina hefur hún verið góð kynning á hestamennskunni í heild. Það er mikið af fólki sem er ekki í hestamennsku sem er farið að fylgjast með deildinni.“
Hver er leyndardómurinn á bak við góðan árangur?
„Þar þarf margt að koma til. Maður þarf að vera vel undirbúinn fyrir hverja grein, með hest sem passar í verkefnið. Hestarnir þurfa að vera í góðu þjálfunarástandi, bæði andlega og líkamlega og og þeir þurfa að vera réttri þjálfun þegar að keppni kemur. Maður þarf því að þekkja hestinn vel til að geta toppað hann á réttum tímapunkti.“
Er ekki meiri háttar mál að vera með hestakost í allar greinar tilbúna yfir veturna?
„Jú, en það er einmitt það sem gerir Meistaradeildina flókna og erfiða. Það er líka mikið atriði að kunna að þrepa hestana aftur niður, þannig að hægt sé að halda þeim ferskum út allt keppnistímabilið. Ég var til dæmis ekki með hestakost í allar greinar, en ég átti góða að sem voru tilbúnir til að lána mér hesta og held ég að meirihlutinn af knöpunum í deildinni séu ekki eingöngu með eigin hesta. Enda held ég að ef knöpum bæri skylda til að vera með eigin hesta, þá væri erfitt að halda úti Meistaradeild.
Hvert er eftirminnilegasta augnablik Meistaradeildar?
„Það var þegar ég sigraði Meistaradeildina þegar hún var haldin í fyrsta skipti og náði að landa sigri með einu stigi með því að vinna Sigurbjörn Bárðason í síðustu greininni sem var 150 metra skeið.“
Ertu ánægður með uppbyggingu og form Meistaradeildar?
„Já að flestu leyti. Meistaradeildin hefur þróast heilmikið frá því í byrjun og held ég að hún eigi eftir að þróast enn frekar. Örn Karlsson á Ingólfshvoli var upphafsmaður og frumkvöðull Meistaradeildar og á hann mikið hrós skilið fyrir allt sem hann lagði af mörkum til að koma þessari deild af stað.“
Hvernig sérðu deildina þróast áfram? Finnst þér t.d. einhverjar breytingar fyrirsjáanlegar?
„Já, að það verði að passa betur uppá það að tímalengdin á hverjum viðburði fari alls ekki yfir 3ja tíma prógramm, fólk verður þreytt og byrjar að tínast burt ef að keppnisgreinarnar dragast of á langinn.“
Hvað er framundan hjá þér?
„Núna undirbý ég hross fyrir kynbótasýningar og úrtökur fyrir Landsmót. Hérna er þónokkur hópur af ungum og óreyndum hrossum og alveg upp í reynd keppnishross sem á svo eftir að sjá hvernig þróast síðustu vikurnar fram að úrtöku fyrir Landsmót.
Stefnir þú einnig á HM?
„Já, ég er með svona 2 – 3 spil á hendi í sambandi við það sem ég á endanlega eftir að taka ákvörðun með.“
Árangur Sigurðar í Meistaradeildinni 2011
Fjórgangur
Hestur: Loki frá Selfossi
Forkeppni: 1. sæti með einkunnina 7,57
A-úrslit: 1. sæti með einkunnina 7,63
Viðtal: Loki er alltaf tilbúinn til að vinna
Gæðingafimi
Hestur: Hljómur frá Höfðabakka
Forkeppni: 3. sæti með einkunnina 7,06
Úrslit: 4. sæti með einkunnina 7,29
Tölt
Hestur: Jódís frá Ferjubakka 3
Forkeppni: 7. sæti með einkunnina 7,17
B-úrslit: 6. sæti með einkunnina 7,78
A-úrslit: 2.-3. sæti með einkunnina 7,83
Fimmgangur
Hestur: Svalur frá Blönduhlíð
Forkeppni: 5. sæti með einkunnina 6,53
B-úrslit: 2.-3. sæti með einkunnina 7,00
150 metra skeið
Hestur: Vera frá Þóroddsstöðum
5. sæti
Gæðingaskeið
Hestur: Freyðir frá Hafsteinsstöðum
2. sæti með einkunnina 7,92
Slaktaumatölt
Hestur: Gulltoppur frá Þjóðólfshaga 1
Forkeppni: 11. sæti með einkunnina 6,93
Flugskeið
Hestur: Freyðir frá Hafsteinsstöðum
6. sæti
Lokastaða í einstaklingskeppni:
Sigurvegari með 58 stig
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH