Ný heimildamynd um afreksmanninn Sigurbjörn Bárðarson

  • 3. febrúar 2025
  • Tilkynning
Heimildarmyndin Sigurvilji verður frumsýnd 8. febrúar

Sigurvilji, ný íslensk heimildamynd um Sigurbjörn Bárðarson tamningameistara og landsliðsþjálfara, verður frumsýnd laugardaginn 8. febrúar í Laugarásbíói. Myndin fer í kjölfarið í almennar sýningar í Laugarásbíói og í Bíóhúsinu á Selfossi.

Sigurbjörn er þjóðsagnapersóna í lifanda lífi og einn verðlaunaðasti íþróttamaður íslenskrar íþróttasögu. Hann hóf ferilinn ungur með tvær hendur tómar en var fljótur að læra af hestamönnum og bílabröskurum hvernig hann ætti að ná árangri og komast á toppinn. Sigurvilji varpar ljósi á mikinn sigurvegara, dýravin og baráttumann sem hefur áratugum saman verið í fremstu röð af eigin verðleikum.

Saga Sigurbjörns er stórbrotin og hefur veitt mörgum innblástur til að láta ekki deigan síga og gefast ekki upp þótt á móti blási. Í myndinni er farið yfir sögu þessa merka íþróttamanns og rýnt í persónueinkennin. Þá er einnig skyggnst bak við tjöldin í þeim verkefnum sem hann glímir við í dag. Á áttræðisaldri er hann enn í fremstu röð hestaíþróttamanna og gefur þeim yngri ekkert eftir með keppnisskapið logandi í brjósti.

Sigurbjörn hefur oftar orðið Íslandsmeistari, Evrópumeistari og heimsmeistari á íslenskum hestum en nokkur annar. Hann var kjörinn íþróttamaður ársins árið 1993 og var tekinn inn í heiðurshöll Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands í ársbyrjun 2025.

Framleiðendur Sigurvilja eru Áslaug Pálsdóttir og Guðrún Hergils Valdimarsdóttir en saman reka þær framleiðslufyrirtækið Hekla Films. Hrafnhildur Gunnarsdóttir fer með leikstjórn og stjórn kvikmyndatöku. Klippingu annaðist Jakob Halldórsson. Biggi Hilmars frumsamdi tónlist sérstaklega fyrir myndina og hljóðhönnun var í höndum Péturs Einarssonar. Sigurvilji hlaut framleiðslustyrk frá Kvikmyndamiðstöð Íslands. Hekla Films hefur einnig framleitt Konung fjallanna, heimildamynd um Kristin Guðnason fjallkóng. Konungur fjallanna var mest sótta íslenska heimildamyndin í kvikmyndahúsum árið 2023.

Nánar um feril Sigurbjörns: 

Sigurbjörn hefur keppt í öllum greinum hestaíþrótta í 57 ár. Hann er margfaldur Íslands- og heimsmethafi í skeiðgreinum, hefur 13 sinnum unnið til gullverðlauna á heimsmeistaramótum og unnið yfir 120 Íslandsmeistaratitla. Hann var kjörinn íþróttamaður ársins árið 1993 og hefur fimm sinnum verið tilnefndur í hóp tíu efstu í kjörinu um íþróttamann ársins. Sigurbjörn er enn að keppa og hefur gegnt starfi landsliðsþjálfara A-landsliðs Íslands frá árinu 2018.

Sigurbjörn hefur hlotið riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu og heiðursverðlaun Landssambands hestamannafélaga fyrir störf sín í þágu hestaíþrótta á Íslandi. Sigurbjörn hefur verið virkur í félags- og menntamálum hestamanna og setið sem formaður menntanefndar við Háskólann á Hólum í áraraðir. Hann er heiðursfélagi hestamannafélagsins Fáks og Félags tamningamanna og var tekinn inn í heiðurshöll Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands í ársbyrjun 2025.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar