Silli kokkur gefur 10% af veitingasölunni í kvöld

  • 20. júní 2020
  • Fréttir

Frami frá Ketilsstöðum og Elin Holst eru á meðal keppenda í kvöld á heimavelli á Selfossi

Meistaradeild í hestaíþróttum

Lokamót Meistaradeildarinnar er í kvöld á Selfossi og hefst keppni kl. 19:00. Boðið verður upp á grill áður en keppni hefst en grillið byrjar kl. 17:00 og kl. 17:20 mun Ingó veðurguð skemmta mótsgestum. Því um að gera mæta tímanlega en hér fyrir neðan má sjá matseðilinn. Vert að taka fram að Silli kokkur gefur 10% af veitingasölunni í styrktarsjóð Eddu Rúnar og fjölskyldu.

Matseðill  – Silli kokkur

Gæsaburger

Gæsaburger með rucola – sultaður rauðlaukur með bláberjum, rabbabara og döðlum – Gæsalæra confit og reykt gráðaostasósa.

Stakur 1800 / með gosi 2000 kr

 

Gæsapylsa

BBQ Jalapenó gæsapylsa með peruchutney – gæsalæra confit – wasabi hnetum og sriracha mæja

Stök 1800 / með gosi 2000 kr

 

Kjúklingaréttur

Kjúklingaréttur, kartöflubátar og gos

2000 kr

 

Pylsa og eftirréttur

Pylsa, sukkulaðibitakaka og gos/svali

1500 kr

 

Annað

Deig kleinuhreingur 600 kr

Gos 300 kr

Djús 200 kr

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link