Sjálfboðaliðar á Landsmóti
Skipuleggjendur Landsmóts hestamanna eru að leita eftir sjálfboðaliðum.
„Til að mæta þeim kröfum sem gerðar eru til Landsmóts þurfum við öflugan hóp sjálfboðaliða sem eru tilbúnir að leggja sitt á vogarskálarnar til að gera upplifun keppenda og gesta sem eftirminnilegasta. Þá er sjálfboðavinnan skemmtilegur vettvangur fyrir þá sem vilja kynnast öðru áhugafólki um hestamennsku og starfa í skemmtilegum fjölþjóðlegum hópi,“ segir í tilkynningu frá mótshöldurum.
Sjálfboðaliðar fá ókeypis aðgang að Landsmóti, ókeypis aðgang að tjaldsvæði, fæði á meðan vöktum stendur og varning merktan Landsmóti.
Nánari upplýsingar um sjálfboðaliðana er að finna hér:
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH