Skeiðleikar næsta miðvikudag
Skráning er hafin og fer fram í gegnum Sportfeng. Velja þarf Skeiðfélagið sem mótshaldara og lýkur skráningu þriðjudaginn 18. júlí.
Skeiðfélagið hvetur sem flesta til að taka þátt enda til mikils að vinna þar sem stigahæsti knapinn hlýtur Öderinn sem gefinn er af þeim Gunnari og Kristbjörgu í Auðsholtshjáleigu til minningar um Einar Öder Magnússon. Einnig hlýtur stigahæsti knapinn 100.000kr gjaúttekt í Líflandi.
Völlurinn og aðstæður á Selfossi eru til fyrirmyndar og náðust meðal annars bestu tímar ársins í 250m og 100m skeiði þar á Íslandsmótinu í byrjun mánaðarins.
Skeiðleikarnir verða með hefbundnu sniði þar sem byrjað verður á 250 m skeiði og endað á 100 m skeiði og hefjast klukkan 19:30.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts