Skeifudagur Grana á Mið-Fossum
„Sumardaginn fyrsta 25. apríl verður haldinn hátíðlegur Skeifudagur Hestamannafélagsins Grana í Hestamiðstöð LbhÍ á Mið-Fossum í Andakíl. Grani er hestamannafélag nemenda við Landbúnaðarháskóla Íslands. Þennan dag sýna nemendur í hrossarækt við Bændadeild LbhÍ afrakstur vetrarstarfsins í reiðmennsku og frumtamningum. Reiðkennari nemenda í vetur er Heimir Gunnarsson. Jafnfram verður keppni milli nemenda sem stunda nám í Reiðmanninum í gegnum Endurmenntun LbhÍ. Að þessu sinni koma fulltrúar frá sjö hópum; Miðfossum, Akureyri, Hellu, Flúðum, Selfossi og 2 x Víðidal. Reiðkennarar Reiðmannsins eru Ísleifur Jónasson, Anna H. Valdimarsdóttir, Reynir Örn Pálmason, Heimir Gunnarsson, Erlingur Ingvarsson, Halldór Guðjónsson og Þórdís Erla Gunnarsdóttir.
10:00 – Forkeppni í Reynisbikarnum
13:00 – Setningarathöfn
Sýningaratriði reiðkennara
Kynning á frumtamningatryppum
Úrslit í keppni um Reynisbikarinn
Úrslit í keppni um Gunnarsbikarinn
15:00 – Kaffihlaðborð í mötuneyti skólans með verðlauna afhendingum og útskrift reiðmanna. Þar verður m.a. Morgunblaðsskeifan, en hún er veitt fyrir bestan samanlagðan árangur úr verklegum hluta í Hrossarækt III. Happadrættismiðar verða til sölu, í vinning fjölmargir folatollar!,“ segir í tilkynningu frá LbhÍ
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH