Skemmtilegt dagskrá framundan á Íslandsmótinu
„Á morgun, laugardag, verður þétt og skemmtileg dagskrá. Dagskráin hefst með forkeppni í Tölti T1 og T2. Þá verður krýndur fyrsti Íslandsmeistarinn á þessu móti þegar gæðingaskeið verður riðið. Eftir kaffi hefjast B úrslit í fimmgang og fjórgang.
Þá verður grill, en hinir alræmdu Riddarar Norðursins munu sjá um að haldi uppi fjörinu við grillið. Að því loknu verður keppt í 100 m skeiði og mun þá skýrast hver hreppir íslandsmeistaratitilinn í þeirri grein. Síðasta atriðið á vellinum er síðan B-úrslit í tölti T1.
Hljómsveitin Þúfnapex mun síðan stíga á stokk í Skálanum en þá hljómsveit prýðir hin sunnlenska snót Herdís Rútsdóttir frá Skíðbakka ásamt Skagfirðingunum Sigvalda og Jakobi Gunnarssonum. Þegar dagskrá líkur á Melunum tekur við hestamannaball í Miðgarði með stuðgrúppunni Spútnik.
Veðurspá morgundagsins er góð, en samkvæmt vedur.is þá er spáin fyrir Nautabú (næsta veðurathugunarstöð við Vindheimamela) er spáð þurru veðri, hægri sunnanátt og sólarglætu um hádegisbil á laugardegi.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH