Skírdagskaffi Sörla
Skírdagskaffi Sörla verður haldið fimmtudaginn 21. apríl á Sörlastöðum.
„Hið árlega skírdagskaffi Hestamannafélagsins Sörla þar sem borð svigna undan veitingum verður á skírdag, fimmtudaginn 21. apríl á Sörlastöðum. Húsið opnar kl. 14:00 og aðgangseyrir er kr. 1500 fyrir fullorðna og 500 fyrir börn 12 ára og yngri.
Sörlafélagar ríða á móti gestum að vanda.
Allir velkomnir!“ segir í fréttatilkynningu frá Skemmtinefnd Sörla.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH