Skráning á Bleika töltmótið hefst í dag
Skráning á Bleika töltmótið fer fram í kvöld.
Hið árlega kvennamót Bleika töltmótið fer fram í reiðhöllinni í Víðidal á konudaginn 19. febrúar nk. og hefst kl 12.30. Mótið er einungis ætlað konum 17 ára og eldri en keppt verður í byrjendaflokki, flokki minna vanra, meira vanra og opnum flokki. Skráningagjöld eru frjálst framlag og renna óskert til Krabbameinsfélags Íslands til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini en þó að lámarki 3.000 kr.
Skráningu skal senda á netfangið [email protected] 13. febrúar frá kl. 18-22 þar sem fram kemur IS númer hests, keppnisflokkur, kennitala knapa og símanúmer og upp á hvora hönd er riðið.
Einnig er tekið á móti skráningu í gegnum síma, 894-3980 Auður, 893-3559 Drífa, 660-1750 Laufey og 863-4252 Jóhanna.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH