Skráningar á kynbótasýningar hófst í morgun
Opnað hefur verið á skráningar á kynbótasýningar. Eins og síðustu ár fer skráning og greiðsla fram á heimasíðu RML.
Mikil læti voru í kringum skráningar í fyrra en heimasíða RML hrundi ítrekað. Skráningar fara rólega af stað, það hefur gengið vel í morgun og enn nóg af lausum plássum. Greinilegt er að ein sýning er vinsælli en aðrar en það er að fyllast á sýninguna á Gaddstaðaflötum á Hellu dagana 5. til 9. júní. á meðan lítið hefur verið skráð á aðrar sýningar.
Í meðfylgjandi töflu má sjá hvaða sýningarstaðir eru í boði og lokaskráningardag á hverja sýningu en skráningu þarf að vera lokið á miðnætti þess dags. Ef sýning fyllist lokast sjálfkrafa á sýninguna þó svo skráningarfrestur sé ekki útrunninn.
Verð fyrir fullnaðardóm er 39.350 kr. en fyrir sköpulagsdóm/hæfileikadóm 30.000 kr. Ganga þarf frá greiðslu um leið og hrossið er skráð.
ATH:
- Ekki er hægt að skrá hryssur eða geldinga til sýningar nema búið sé að taka úr þeim stroksýni til DNA-greiningar og staðfesting á því liggi fyrir í WF.
- Allir stóðhestar verða að vera DNA-greindir svo og foreldrar þeirra.
- Úr öllum stóðhestum fimm vetra og eldri þarf að liggja fyrir í WF að búið sé að taka blóðsýni og röntgenmynda vegna spatts.
- Ekki er hægt að skrá hross á kynbótasýningu nema þau séu örmerkt
- Ef örmerki finnst ekki í hrossi sem mætir til dóms ber að örmerkja það á staðnum og taka stroksýni úr nös til DNA-greiningar á ætterni, með þeim kostnaði sem af því hlýst fyrir eiganda/forráðamann. Örmerki og DNA-sýni þurfa ávallt að fylgjast að.
Ekki er hægt að skrá hross til sýningar nema ofantaldar kröfur séu uppfylltar og skráning liggi fyrir í WorldFeng. Hross sem koma inn á sýningu í stað annarra skráðra hrossa og uppfylla ekki þessi skilyrði, verður vísað frá sýningu strax hjá mælingamanni án undantekninga. Sýningargjald er ekki endurgreitt í slíkum tilfellum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH