Skráning fram á sunnudag

  • 14. apríl 2012
  • Fréttir
Skráning fram á sunnudag

Ákveðið hefur verið að hafa opið fyrir skráningu á opna WR mót Mána til miðnættis sunnudaginn 15.apríl.

Skráning fer fram á [email protected]
Helstu upplýsingar sem þurfa að koma fram eru:
Við skráningu þarf að koma fram kennitala knapa, símanúmer, IS númer hests, keppnisgrein, flokkur og upp á hvora hönd er riðið í hringvallagreinunum. Kortanúmer og gildistími korts þarf að fylgja.
 
Keppt verður í öllum hefðbundnum greinum og flokkum s.s. T1, 4g, 5g, T2, gæðingaskeiði og 100m skeiði í meistaraflokk, 1.flokk, 2.flokk og yngri flokkum, ef næg þátttaka næst en annars verða flokkar sameinaðir.
ATH einnig verða pollaflokkar í boði (Ekki raðað í sæti).
 
 
Einnig viljum við vekja sérstaka athygli á því að í boði verða einnig T5 og T7
T5 -Verkefni:
Hægt tölt – hægt niður á fet og skipt um hönd
Hraðabreytingar, aukinn hraði á langhliðum, hægt tölt á skammhliðum.
T7-Verkefni:
Hægt tölt – hægt niður á fet og skipt um hönd
Frjáls ferð á tölt.
Skráningargjald er kr 3.500 á grein nema í pollaflokka kr 1.500.
 
Mótanefnd Mána

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link