Skráning hafin á Gæðingamót Jökuls
Gæðingamót Jökuls verður haldið dagana 27. – 30.júlí næstkomandi. Mótið verður með hefðbundnu sniði.
Flokkar í boði:
A- flokkur
A-flokkur áhugamanna
A- flokkur ungmenni
B-flokkur
B- flokkur áhugamanna
B- flokkur ungmenna
unglingaflokkur
barnaflokkur
tölt T3 – 18 ára og eldri
tölt T3 – 17 ára og yngri, tölt
T7 – börn
T7 – fullorðna
100m skeið
Skráningargjald: í eldri flokka og skeið er 7.000 kr og í yngri flokka 5.000 kr.
Peningaverðlaun eru í fullorðinsflokkum mótsins og vegleg verðlaun í öllum yngri flokkum. Búið er að opna fyrir skráningar á sportfeng.com.
Mikilvægt að senda staðfestingu á greiðslu á netfangið [email protected] til að skráning teljist.
„Margir styrktaraðilar koma að þessu móti og verða þeir auglýstir í aðdraganda mótsins. Takið helgina frá, fjölmennum á Flúðir á þetta skemmtilega mót,“ segir í tilkynningu frá mótshöldurum.
Nánari upplýsingar um mótið má fá með að senda póst á [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts