Skráning hafin á Kynbótasýningu á Dalvík
Kynbótasýning verður haldin að Hringsholti við Dalvík dagana 18.-20. maí nk. að er fram kemur í tilkynningu frá Búseta.
„Tekið er við skráningum í Búgarði, í síma 460-4477 eða á netfangið [email protected]. Síðasti skráningardagur og greiðsludagur er mánudagu 9. maí. Gefa þarf upp einstaklingsnúmer við skráningu. Sýningargjald er kr.15.000.- fyrir fulldæmt hross en kr. 10.500 fyrir hross sem aðeins er skráð í byggingardóm eða hæfileikdóm. Hægt er að greiða í Búgarði. Einnig má leggja inn á reikning 302-13-200861, kt. 490169-1729, og senda kvittun á netfangið [email protected] skýring: nafn á hrossi og fæðinganúmer. Munið að kynna ykkur reglur um einstaklingsmerkingar, járningar, blóðsýni, dna-sýni og spattmyndir.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH