Skráning hafin á Áhugamannamót

  • 8. júlí 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Keppt verður í íþróttakeppni.

Áhugamannamót Íslands verður haldið á Rangárbökkum við Hellu 17-19.júlí næstkomandi. Stórglæsilegir vinningar í öllum greinum sem á sér enga hliðstæðu í mótahaldi hér á landi. 

Næg beitarhólf og önnur aðstaða fyrir keppendur og gesti(nánari upplýsingar 8642118 Hallgrímur).

Hestamannafélögin Geysir, Sindri, Smári, Kópur standa að mótinu.

Skráning fer fram á heimasíðu Geysis hmfgeysir.is undir hnappnum skráningarkerfi(eða sportfengur.com undir hnappnum skráningarkerfi) og lýkur þriðjudaginn 14.júlí kl 23:59.

Skráningargjald 4000kr og greiðist samhliða skráningu.

Áætluð dagskrá mótsins

 Föstudagur 17.júlí
Fjórgangur
Gæðingskeið

Laugardagur 18.júlí

Fimmgangur
Tölt
100m skeið
Sameiginlegt grill og kvöldvaka

Sunnudagur

B-úrslit
A-úrslit

Eftirfarandi eru keppnisgreinar mótsins ásamt útskýringum úr lögum og reglum LH.

 

Fjórgangur V2

Tveir eða fleiri knapar eru á hringvellinum í einu. Hestarnir sýna fjórar gangtegundir eftir fyrirmælum þular eins og lýst er 5.4.2. Þeir hefja keppni upp á þá hönd sem þeir eru skráðir í ráslista.
Verkefni:1. Hægt tölt 
2. Hægt til milliferðar brokk 
3. meðalfet 
4. Hægt til milliferðar stökk 
5. Yfirferðartölt

Fjórgangur V5 (í skráningu 2.flokkur annað)

Tveir eða fleiri knapar eru á hringvellinum í einu. Hestarnir sýna fjórar gangtegundir eftir fyrirmælum þular eins og lýst er 5.4.2. Þeir hefja keppni upp á þá hönd sem þeir eru skráðir í ráslista 
Verkefni: 1. Frjáls ferð á tölti 
2. Hægt til milliferðar brokk 
3. Meðalfet 
4. Hægt til milliferðar stökk

Fimmgangur F2

Tveir eða fleiri knapar eru á hringvellinum í einu. Hestarnir sýna fimm gangtegundir eftir fyrirmælum þular eins og lýst er 5.4.2 Þeir hefja keppni upp á þá hönd sem þeir eru skráðir í ráslista 
Verkefni: 1. hægt til milliferðar tölt 
2. hægt til milliferðar brokk 
3. meðalfet 
4. hægt til milliferðar stökk 
5. flugskeið
Sýna má skeið þrisvar á einni langhlið. Meirihluti knapa velur þá langhlið sem skeið skal sýnt á. Geti þeir ekki komið sér saman um langhlið ákveður þulur á hvaða langhlið skeiðið skal sýnt. Einkunnir fyrir tölt og skeið vega tvöfalt.

Tölt T3

Tveir eða fleiri knapar eru á hringvellinum í einu í þessari keppnisgrein. Hestarnir sýna þrjú verkefni eftir fyrirmælum þular eins og lýst er í 5.4.2. Þeir hefja keppni upp á þá hönd sem þeir eru skráðir í ráslista 
Verkefni: 1. Hægt tölt. 
Hægt niður á fet og skipt um hönd 
2. Hægt tölt, greinilegur hraðamunur á langhliðum, hægt tölt á skammhliðum.. 
3. yfirferðartölt.

Tölt T7

Í þessari grein eru 2 eða fleiri knapar á hringvellinum í einu. Atriði eru sýnd samkvæmt fyrirmælum þular eins og lýst er í 5.4.2. Þeir hefja keppni upp á þá hönd sem þeir eru skráðir í rásröð. 
Verkefni: Hægt tölt – hægt niður á fet og skipt um hönd 
Frjáls ferð á tölti

Tölt T4

Þrír knapar eru á vellinum í einu og ríða eftir fyrirmælum þular. 
Verkefni: 1. Tölt á frjálsri ferð. 
2. Hægt tölt, jafn og rólegur hraði. Ekki er gerð sama krafa um hraða og í T1 
Hægt er niður á fet og skipt um hönd 
3. Hægt tölt upp í milliferð, þar sem báðir taumar eru teknir í aðra hönd og greinilega sýnt að taumsamband við munn hestsins sé ekki til staðar. 
Einkunnir fyrir þriðja lið verkefnisins eru tvöfaldaðar.

Gæðingaskeið

100m skeið

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link