Skráning hafin í Líflandsdeildina
Líflandsdeildin hefur göngu sína þann 16. febrúar og verður hún með aðeins öðruvísi sniði en síðast liðin ár. Deildin er liðakeppni og er ótakmarkaður fjöldi í hverju liði og hafa allir knapar þátttökurétt.
„Við byrjum í fullorðinsflokki og ef vel gengur þá er hægt að færa það niður í yngri flokka á næsta ári. Þetta er til reynslu og gert til að auðvelda nýliðum að koma og keppa með stuðningi þeirra sem reyndari eru. Þetta er líka til gamans gert og til að auka samheldni. Hjálpumst að við að þróa fyrirkomulagið og höfum þetta gaman og spennandi,“ segir í tilkynningu hjá félaginu.
Ekki er heimilt að skipta um lið eða taka inn nýja knapa í liðið eftir að fyrstu grein er lokið. Sé knapi í engu liði getur hans samt keppt á mótunum þó fyrstu grein sé lokið og er þá án liðs. Knapar þurfa ekki að keppa í öllum greinum þeir geta t.d. einungis keppt í einni grein en þó verið í liði.
Hafir þú áhuga á að vera í liði í vetur geturðu sent nafn, kennitölu og símanúmer á netfangið [email protected]. Dregið verður í lið til þess að tryggja jafna og skemmtilega keppni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts