Skráning á Hestvits töltið
Skráning á Hestvits töltið er í fullum gangi á sportfengur.com og
líkur skráningu miðvikudaginn 27.febrúar. Skráningagjald er 4.000 kr.-
Fákasels mótaröðin hefst 1 mars en þá verður keppt í tölti T3 og er
það Hestvit sem styrkir mótið. Gert er ráð fyrir að mótið hefjist um
kl. 19.00, en fer þó aðeins eftir skráningu. Mótaröðin er opin öllum
sem eru eldri en 16 ára og mun skráning fara fram inn á Sportfeng.
Boðið verður upp á tvo flokka – áhugamanna og opinn flokk. Gert er ráð
fyrir hámarks fjölda sem er 45 keppendur.
Hægt verður að safna stigum á hverju móti og eftir síðasta mótið verða
veitt 100.000 kr peningaverðlaun fyrir stigahæsta knapa í báðum
flokkum.
Skráning hefst á föstudaginn 22. febrúar og lýkur miðvikudaginn
27.febrúar. Skráningagjald er 4.000 kr.-
Hinar greinarnar eru:
22. mars Fimmgangur F2
19.apríl Fjórgangur V2
Hlökkum til að sjá sem flesta taka þátt í skemmtilegri mótaröð á
föstudagskvöldum í vor. Hægt verður að fylgjast með Fákasels
mótaröðinni á facebooksíðu Fákasels.
Barinn verður að sjálfsögðu opinn og boðið verður upp á flott tilboð í mat.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH