Skráning í þolreiðarkeppni LH er í janúar

  • 4. nóvember 2021
  • Fréttir
Survive Iceland - Icelandic horse endurance ride

Eins og mörgum er kunnugt hélt Landssamband hestamannafélaga þolreiðarkeppni yfir hálendið síðastliðið sumar. Keppnin var ekki opinber heldur var hún haldin í smáu sniði sem prufukeppni og undirbúningur fyrir stærri þolreiðarkeppni sem haldin verður 2022. Keppnin í sumar fékk mikla athygli víða um heim og fékk töluverða umfjöllum í erlendum fjölmiðlum.

Þolreið LH 2022 hefur hlotið nafnið Survive Iceland – Icelandic horse endurance ride og er mikil eftirvænting fyrir komandi keppni. Hún verður hún haldin dagana 25.-28. ágúst og keppnisleiðir verða um suðurhálendið.

Fyrirkomulag keppninnar verður eins og sl. sumar þar sem 1 knapi keppir með 2 aðstoðarmenn og 3 hesta. 10 lið munu taka þátt og hefst skráning í byrjun janúar á vefsíðu LH lhhestar.is. Fyrir nánari upplýsingar má senda póst á: [email protected] Kynningarmyndin er unnin af þeim Þorsteini Roy Jóhannssyni og Snorra Björnssyni. Ráðgjafi var hestamaðurinn og leikstjórinn Hinrik Ólafsson.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link