Hestamannafélagið Sprettur Skráning opin á Karlatölt Spretts

  • 23. apríl 2024
  • Fréttir
Búið er að framlengja skráningarfresti á Karlatölt Spretts

Karlatölt Spretts verður föstudaginn 26. apríl í Samskipahöllinni í Spretti. Boðið er upp á keppni í fjórum flokkum; T3 opinn flokkur, T3 opinn flokkur – 1. flokkur, T7 opinn flokkur – 2. flokkur og T7 opinn flokkur – 3. flokkur.

Aðeins er hægt að skrá í gegnum skráningakerfið www.sportfengur.com en skráning er opin út daginn í dag. Skráning er 5.500 kr. per hest en leyfilegt er að skrá fleiri en einn hest.

Veglegir vinningar eru í boði í öllum flokkum. Hvetjum við alla karla til þess að taka þátt í einu skemmtilegasta karlatölti landsins og hafa gaman saman,“ segir í tilkynningu frá karlatöltsnefnd Spretts.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar