Skráningarfrestur hefur verið framlengdur
3. Vetrarmót hestamannafélagsins Grana á Hvanneyri verður haldið að Mið-Fossum í Borgarfirði fimmtudagskvöldið 8. apríl klukkan 18.00. Skráningarfrestur hefur verið framlengdur til klukkan 13.00 fimmtudaginn 8. apríl.
Keppt verður í Smala í 1. flokki, 2. flokki og í flokki fyrir 17 ára og yngri, en smalinn gengur út á það að vera sem fyrstur í gegnum uppsetta þrautabraut.
Skráningar skulu berast í tölvupósti á [email protected]
Í skráningu á að koma fram:
- Nafn knapa
- Nafn hests
- Aldur
- Litur
- Flokkur
Skráningargjald er 1000 krónur á hest, en 500 krónur fyrir næsta hest ef knapi er með fleiri en einn.
Frítt er inn fyrir áhorfendur og sjoppa á staðnum sem mun selja rjúkandi gómsæta kjötsúpu!!
Ég hvet alla til þess að mæta og hafa gaman af!! Þetta er prýðisgóð upphitun fyrir Ljótu hálfvitana sem eru að spila í Logalandi um kvöldið!! 😀
Kær kveðja Grani 🙂
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH