Skráningu að ljúka

  • 21. júlí 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Gæðingamót Smára og Loga á Flúðum.

Minnum á opið gæðingamót Smára og Loga á Flúðum 24-26 júlí. Einnig verður opið tölt og fljúgandi skeið ! Skráning er í fullum gangi og hvetjum við fólk til að drífa í að skrá en skráningarfrestur rennur út í kvöld 21 júlí kl. 23.59 

Dagskrá verður birt um leið og skráningu lýkur ! Fylgist því vel með á facebook og smari.is

Skráning fer fram á skraning.sportfengur.com  og Velja þarf hmf. Smári sem mótshaldara. Hvetjum við fólk til að skrá tímalega til að lenda ekki í vandræðum á síðustu stundu. Ekki verður tekið við skráningum eftir auglýstan skráningarfrest.

Skráningargjöld eru:
• 1500 kr fyrir börn og unglinga í alla flokka
• 2500 kr fyrir ungmenni og fullorðna í gæðingakeppni
• 3500 kr fyrir ungmenni og fullorðna í tölt 
• 2000 kr í flugskeið 

Hestagerði er á staðnum og hægt að koma ríðandi og hvetjum við alla félaga og aðra hestamenn að láta sjá sig og njóta fallegra hesta í Uppsveitunum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link