Skráningu lýkur á sunnudag
Minnt er á að skráning á Íslandsmót í hestaíþróttum lýkur á miðnætti sunnudagsins 28. júní í tilkynningu frá hestamannafélaginu Spretti.
„Skráning er í fullum gangi en við minnum á að skráningarfrestur til miðnættis sunnudagsins 28 júni. Skráning er á www.sportfengur.com
Stofnuð hafa verið tvö mót í Sportfeng. Eitt fyrir fullorðna og ungmenni og annað fyrir börn og unglinga. Þetta er gert til að einfalda vinnu í Kappa – biðjum þá sem skrá sig að hafa það í huga.
Skráningagjald er kr. 4500 fyrir barna-, unglinga- og ungmennaflokka, kr. 6500 fyrir fullorðinsflokkana og kappskeiðgreinar kr. 4.000,-
Skráning er staðfest með greiðslu – annað ekki tekið til greina.
Hægt er að skrá til miðnættis 1 júlí en þá hækkar skráningargjaldið um kr. 2000 á hverja grein.
Allar frekar upplýsingar um skráningu fást með að senda tölvupóst á [email protected]
Keppendur athugið að það er einn keppandi inná vellinum í einu nema í fjórgang barnaflokki en þá verða 3 inná í einu og riðið eftir þul.
Öll aðstaða er til staðar á Sprettssvæðinu og hesthús í boði. Allar nánari upplýsingar um hesthúsapláss fást hjá framkvæmdastjóra Spretts Magga Ben.
Við hvetjum knapa til að fylgjast vel með upplýsingum á heimasíðu Spretts, á facebooksíðu Spretts og á viðburðinum “Íslandsmót í hestaíþróttum” sem stofnuð hefur verið. Einnig verður gefið út kort um aðkomur að svæðinu og hvar hvaða viðburðir fara fram.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH