Skrúðreið kl. 12
Veðrið virðist ætla að leika við þáttakendur skrúðreið sem farin verður frá BSí og upp Laugaveg núna kl. 12 að tilefni Hestadaga í Reykjavík.
Eiðfaxi hvetur alla hestamenn til að skella sér í miðbæ Reykjavíkur til að fagna þessum sérstaka viðburði!
Að skrúðreiðinni lokinni verður frítt í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinn þar sem fjölskylduhátíðin „Gobbedí Gobb“ fer fram með ýmsum skemmtilegum uppákomum og sýningum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH