Sleipnir skuldar tíu milljónir
Hestamannafélagið Sleipnir á Selfossi og nágrenni skuldar 10 milljónir króna. Skuldin er tilkomin vegna uppbyggingar íþróttakeppnissvæðis félagsins á Brávöllum, sem ráðist var í 2003 í samstarfi við sveitarfélagið Árborg. Í grein sem formaður Sleipnis, Þórdís Ólöf Viðarsdóttir, skrifar í Dagskrána, segir að þrátt fyrir myndarlegt framlag sveitarfélagsins hafi félagið þurft að taka 5 milljónir króna að láni. Félagið hafi ekki náð að standa í skilum með lánið og það standi nú í 10 milljónum. Skuldir félagsins séu því ekki vegna nýrrar reiðhallar á svæðinu, eins og margir telji. Sleipnir hefur nú farið þess á leit við sveitarfélagið Árborg að það komi að áframhaldandi uppbyggingu svæðisins á Brávöllum og leggi einnig fé í reiðhöllina svo hægt sé að ljúka byggingu hennar. Fyrir liggur að Íslandsmót í hestaíþróttum 2011 verður haldið á Brávöllum og einnig Landsmót UMFÍ 2012 og 2013. Sveitarfélagið hefur tekið jákvætt í þá umleitan. Málið er á viðræðustigi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári