Smá frá Þúfu tryggir Íslandi fyrsta gullið á HM-
Fyrsta gullið er í höfn fyrir Ísland! Smá frá Þúfu er hæst dæmda 5 vetra hryssa í kynbótadómum Heimsmeistaramótsins í ár. Hún hækkaði einkunn sína fyrir skeið úr 8,5 í 9 og lýkur því mótinu með hæfileikaeinkunnina 8,59 og 8,37 í lokaeinkunn.
Tibrá fra Vinkærgard frá Danmörku er í 2. sæti með óbreytta einkunn, 8,29 og hin Norska Ímynd fra Bergkasaer í 3. sæti, hækkaði skeið úr 7 í 8 og fet úr 8 í 8,5, og fer þá úr hæfileikaeinkunninni 8,17 í 8,37.
Á heimsmeistaramótssíðu Eiðfaxa má nú nálgast dóma kynbótahrossa mótsins í þar til gerðum töflum, eins og lesendur þekkja kannski frá Kynbótadómasíðunni í vor. Einkunnir eru uppfærðar á klukkutímafresti og munu því nýju dómarnir birtast innan skamms.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH