„Smá stress fyrst en svo bara gaman“
Myndir: Marta Gunnarsdóttir
Svandís Aitken Sævarsdóttir og Fjöður frá Hrísakoti unnu töltið í unglingaflokki og eru því Íslandsmeistarar í greininni.
„Þetta var mjög gaman, smá stress fyrst en svo bara gaman. Mig langaði mjög mikið að vinna töltið svo ég er mjög ánægð með árangurinn,“ segir Svandís eftir sigurinn.
Í öðru sæti varð Elva Rún Jónsdóttir á Straumi frá Hofsstöðum í Garðabæ og jöfn í þriðja og fjórða sæti eru Matthías Sigurðsson á Drottningu frá Íbishóli og Sigurbjörg Helgadóttir á Elvu frá Auðsholtshjáleigu.
Hægt er að horfa á mótið í beinni á Alendis.is eða inn á Facebooksíðu mótsins
Niðurstöður – A úrslit – Tölt – Unglingaflokkur
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Opið fyrir umsóknir í Áhugamannadeild Norðurlands