Smartar klárhryssur Robba Pet

  • 6. desember 2010
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Heldur tryggð við Björmu frá Árbakka

Það er alltaf skemmtilegt að sjá gamlar myndir úr fortíðinni ganga í endurnýjun lífdaga. Margir muna eftir hinni snyrtilegu klárhryssu Björmu frá Árbakka, Feykisdóttur frá Hafsteinsstöðum. Róbert Petersen, tamningamaður og reiðkennari í Fáki, keypti hryssuna unga og sýndi hana til fyrstu verðlauna 2001. Þá hlaut hún 8,11 í aðaleinkunn, þar af 9,0 fyrir tölt, stökk og fegurð. Hann seldi hana ekki, eins og margir kollegar hans hefðu gert, en hefur ræktað undan henni síðan.

Á kynbótasýningu í Víðidal í sumar sýndi Róbert dóttur Björmu, Fylkingu frá Reykjavík, undan Hróðri frá Refsstöðum. Sú er sláandi lík móður sinni. Ekki náði hún þó yfir áttuna í aðaleinkunn, en var býsna nálægt því. Smart keppnishryssa. Róbert hefur leitt Björmu undir nokkra af eftirsóttustu stóðhestum landsins, svo sem Dyn frá Hvammi, Aron frá Strandarhöfði, Leikni frá Vakursstöðum, Þórodd frá Þóroddsstöðum, Álf frá Selfossi og Óskar frá Blesastöðum. Hann var hins vegar afar óheppinn í sumar þegar 3 vetra dóttir Björmu og Álfs frá Selfossi fórst af slysförum. Hann leiddi hryssuna aftur undir Álf í sumar, en hún er geld.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link