Snúður, trúður, prinsessa og ljón
Grímutölt Sörla verður haldið laugardaginn 1.febrúar að Sörlastöðum í Hafnarfirði. Hefst það stundvíslega kl. 13:30.
Snúður, trúður, prinsessa, ljón, jarðaber, popp, pönkari, norn, dansmær, karl, hús eða einhver önnur furðuvera Síðustu ár hafa búningar verið hver öðrum skemmtilegri.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
– Pollar teymdir/pollar ríða sjálfir
– Börn
– Unglingar og ungmenni
– Fullorðnir
Veitt verða verðlaun fyrir besta búninginn í hverjum flokki.
Tilþrifaverðlaun verða afhent að vanda.
Að auki verður kókosbolluboðhlaupið endurvakið.
Liðin sem munu mæta til leiks eru:
– lið stjórnar Sörla,
– lið mótanefndar,
– lið æskulýðsnefndar og
– lið afmælisnefndar.
Skráning fer fram á www.skraning.is
Þátttakendur eru beðnir um að fylla út heiti eða lýsingu á búningi eða persónu sem þeir eru á mótinu
Verð:
Frítt fyrir polla, 500 fyrir börn og 1000 fyrir aðra.
Hvetjum alla til að taka þátt í frábærri skemmtun.
Gaman væri að sjá áhorfendur koma líka í búningum
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH