Sólon og Frægur sigruðu fimmgangskeppni Uppsveitadeildar

  • 4. apríl 2011
  • Fréttir
Sólon og Frægur sigruðu fimmgangskeppni Uppsveitadeildar

Föstudagskvöldið 1. apríl fór fram keppni í fimmgangi í Uppsveitadeildinni í reiðhöllinni á Flúðum. Sjö lið, hvert með þremur knöpum, mættu til leiks og var keppnin spennandi fram á síðustu mínútu.

Efstur eftir forkeppni var Sólon Morthens á Fræg frá Flekkudal og héldu þeir sæti sínu í úrslitum og stóðu uppi sem öruggir sigurvegarar kvöldsins. Guðmann Unnsteinsson á Prins frá Langholtskoti sigraði B-úrslitin og gerði sér lítið fyrir og skaust upp í annað sætið í A-úrslitum.

Ekki minnkaði spennan í einstaklings-og liðakeppninni en jöfn í 1-2 sæti í einstaklingskeppni eru Aðalheiður Einarsdóttir og Guðmann Unnsteinsson, hálfu stigi þar á eftir kemur Bjarni Birgisson og ekki svo langt á eftir Sigvaldi Lárus Guðmunsson.

Lið JÁVERKS tók nokkuð forskot á liðakeppnina eftir að allir 3 knapar liðsins riðu til úrslita í kvöld, frábært árangur það. Í öðru sæti er svo lið LAND OG HESTA og því næst O.K. PROSTHETICS.

Því er ljóst að allt getur gerst á lokakvöldinu sem fram fer 29. apríl en þá verður keppt í tölti og fljúgandi skeiði.

Meðfylgjandi eru úrslit kvöldsins

Forkeppni

1    Sólon Morthens / Frægur frá Flekkudal 6,97 

2    Sigvaldi Lárus Guðmundsson / Leiftur frá Búðardal 6,03 

3-4.    Bjarni Birgisson / Stormur frá Reykholti 5,67 

3-4.    Hermann Þór Karlsson / Gítar frá Húsatóftum 5,67 

5-6.    Guðmann Unnsteinsson / Prins frá Langholtskoti 5,50 

5-6    Líney Kristinsdóttir / Muska frá Skógskoti 5,50 

7    Guðrún Magnúsdóttir / Baugur frá Bræðratungu 5,40 

8    Knútur Ármann / Hruni frá Friðheimum 5,23 

9    Ingvar Hjálmarsson / Hringur frá Húsatóftum 2 5,13 

10    Sigurður Sigurjónsson / Blúnda frá Arakoti 4,63 

11    Hólmfríður Kristjánsdóttir / Spá frá Skíðbakka I 4,47 

12    Aðalheiður Einarsdóttir / Nn frá Refsstöðum 4,40 

13    Hulda Hrönn Stefánsdóttir / Gyðja frá Hrepphólum 4,37 

14    Kristbjörg Kristinsdóttir / Ilmur frá Jaðri 4,17 

15    Sigurður Halldórsson / Nn frá Halakoti 4,00 

16-17    Halldór Þorbjörnsson / Sædís frá Hveragerði 3,93 

16-17    Einar Logi Sigurgeirsson / Gjöf frá Kýrholti 3,93 

18    Gunnlaugur Bjarnason / Smári frá Hlemmiskeiði 1A 3,80 

19    Linda Dögg Snæbjörnsdóttir / Drottning frá Efsta-Dal II 3,53 

20    Þórey Helgadóttir / Svipall frá Torfastöðum 3,43 

21    Helgi Kjartansson / Panda frá Hvammi I 3,23

B-ÚRSLIT

1    Guðmann Unnsteinsson / Prins frá Langholtskoti 6,36 

2    Guðrún Magnúsdóttir / Baugur frá Bræðratungu 5,50 

3    Líney Kristinsdóttir / Muska frá Skógskoti 5,00

A-ÚRSLIT

1    Sólon Morthens / Frægur frá Flekkudal 7,24 

2    Guðmann Unnsteinsson / Prins frá Langholtskoti 6,67 

3    Hermann Þór Karlsson / Gítar frá Húsatóftum 6,17 

4-5.    Bjarni Birgisson / Stormur frá Reykholti 5,83 

4-5    Sigvaldi Lárus Guðmundsson / Leiftur frá Búðardal 5,83

 

STAÐAN Í EINSTAKLINGSKEPPNINNI EFTIR 3 MÓT

1-2. Aðalheiður Einarsdóttir                HAUKARNIR 19

1-2. Guðmann Unnsteinsson         O.K. PROSTHETICS 19

3 Bjarni Birgisson                  LAND OG HESTAR 18,5

4 Sigvaldi Lárus Guðmundsson        JÁVERK 17,5

5-6. Einar Logi Sigurgeirsson              VORMENN 11

5-6. Líney Kristinsdóttir                     JÁVERK 11

7-8. Hólmfríður Kristjánsdóttir        O.K. PROSTHETICS 10

7-8. Sólon Morthens             HÓTEL GEYSIR/ÁSTUND 10

9-10. Knútur Ármann              HÓTEL GEYSIR/ÁSTUND 9

9-10. Guðrún S. Magúsdóttir                JÁVERK 9

11-12. Gunnlaugur Bjarnason         LAND OG HESTAR 8

11-12. Hermann Þór Karlsson             VORMENN 8

13 Ingvar Hjálmarsson                    VORMENN 5

14 Hulda Hrönn Stefánsdóttir       LAND OG HESTAR 4

15-16 Sölvi Arnarsson                           BYKO 2,5

15-16 María Þórarinsdóttir                   JÁVERK 2,5

17 Sigurður Sigurjónsson            HAUKARNIR 1

Liðakeppni:

1 JÁVERK 40

2 LAND OG HESTAR 30,5

3 O.K. PROSTHETICS 29

4 VORMENN 24

5 HAUKARNIR 20

6 HÓTEL GEYSIR/ÁSTUND 19

7 BYKO 2,5

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link