Sölusýning um Laufskálaréttarhelgi
Vegna hryssingslegs veðurfars í Skagafirði þessa stundina neyðumst við til að flytja fyrirhugaða sölusýningu hrossaræktardeildar Hóla- og Viðvíkurhrepps í reiðhöllina Svaðastaði á Sauðárkróki.
Hún hefst kl. 16. í dag. 27 hross, af margvíslegu tagi eru skráð.
Mætum þar með glampa í auga.
kv. Stjórnin