Meistaradeild KS í hestaíþróttum Spenna framundan í Meistaradeild KS

  • 29. apríl 2021
  • Fréttir

Liðsmenn Storm Rider ásamt Styrmi eiganda liðsins. F.v. Elvar Einarsson, Arndís Brynjólfsdóttir, Ásdís Ósk Elvarsdóttir, Styrmir Þorsteinsson, Bjarni Jónasson og Finnbogi Bjarnason. mynd: Birgit Zimmermann

Fimmgangskeppni í Meistaradeild KS fór fram í gærkvöldi. Þórarinn Eymundsson fór með sigur af hólmi á Þránni frá Flagbjarnarholti.  Í liðakeppninni var það Lið Storm Rider sem var stigahæsta lið gærkvöldsins.

Heildarúrslit gærkvöldsins má lesa með því að smella hér.

Eitt keppniskvöld er eftir í Meistaradeild KS þar sem keppt verður í tölti og flugskeiði í gegnum höllina þann 7.maí og því nóg af stigum í pottinum bæði í einstaklings- og liðakeppninni en stöðuna má sjá hér fyrir neðan.

 

Staðan í liðakeppni þegar eitt keppniskvöld er eftir:
1. Þúfur 181,5 stig
2. Íbishóll 181,2 stig
3. Hrímnir 178,7 stig
4. Storm Rider 170,2 stig
5. Hofstorfan 141,5 stig
6. Uppsteypa 133,5 stig
7. Equinics 130,0 stig
8. Leiknisliðið 124,5 stig
Staðan í einstaklingskeppni:
1. Mette Moe Mannseth 98 stig
2. Þórarinn Eymundsson 74 stig
3. Bjarni Jónasson 72 stig
4. Randi Holaker 66 stig
5. Védís Huld Sigurðardóttir 60,5 stig
6. Valdís Björk Guðmundsdóttir 59 stig
7. Guðmar Freyr Magnússon 58,5 stig
8. Magnús Bragi Magnússon 51 stig
9. Finnbogi Bjarnason 49,5 stig
10. Gísli Gíslason 47,3 stig

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link