Spennandi fyrirlestur um aðbúnað og atferli hrossa
„Á fimmtudaginn 7. mars kl 20:00 er athyglisverður fyrirlestur á Sörlastöðum í Hafnarfirði. Þá kemur til okkar Sigtryggur Veigar Herbertsson en hann mun kynna okkur ýmislegt varðandi aðbúnað og atferli hrossa. Sigtryggur hefur gott orð á sér sem skemmtilegur fyrirlesari og er um áhugavert efni að ræða m.a. af hverju hross haga sér eins og þau gera í hesthúsinu. Vonumst til að sjá sem flesta!
500kr inn, kaffi og kleinur, allir velkomnir,“ segir í tilkynningu frá fræðslunefnd Sörla
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH