Spennandi stóðhestur í húsi Daníels
Ungir vel ættaðir og álitlegir stóðhestar vekja ávallt mesta eftirvæntingu þegar farið er að spá í spilin fyrir komandi stórmót. Við nefndum nokkra slíka hér á vefnum fyrir skömmu. Nú fara miklar sögur af ungum stóðhesti, reyndar á fimmta vetur, sem er í eigu Hilmars Sæmundssonar á Efsta-Seli og Daníels Jónssonar, súper-knapa. Grímur er bleikálóttur, undan Þyti frá Neðra-Seli og Söru frá Horni, sem er undan Grími frá Gerði og Bliku frá Sólheimum. Grímur frá Gerði á nú heima í Svíþjóð, en hann er undan Kolskeggi frá Kjarnholtum og Grímu frá Kjarnholtum.
Grímur frá Neðra-Seli er stór og fagurskapaður foli og þykir minna á afa sinn Kolskegg í útliti. Spekingar í kynbótadómarastétt eru sagðir hafa tekið folann út og skotið á einkunnir fyrir sköpulag. Sem samkvæmt sögunni eru flestar í hærri kantinum og talið að munu gefa honum um 8,50 í meðaleinkunn. Ekki slæmt ef það rætist. Að auki þykir Grímur sérlega spennandi á tölti og brokki og varla þarf að spyrja að vekurðunni ef hann sver sig í ættirnar. Alla vega hlýtur að vera töluvert spunnið í folann úr því að hann er orðinn umtalaður og frægur fyrir jól.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH